Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2020 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Jonathan Caldwell (10/28)

28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.

Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.

Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.

Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.

Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn: Jean Babtiste Gonnet frá Frakklandi, Dale Whitnell frá Englandi og Svíana Niklas Lemke og Rikard Karlberg. Þessir 4 deildu 25. sætinu, léku allir á samtals 12 undir pari, 416 höggum. Eins hefir Golf 1 kynnt þann sem varð í 24. sætinu, Toby Tree frá Englandi.

Næst verða kynntir þeir 8 kylfingar sem deildu 17. sætinu en það eru: Sihwan Kim frá Bandaríkjunum, Pedro Figueiredo frá Portúgal, Jonathan Caldwell frá N-Írlandi, Bradley Dredge, frá Wales; Englendingurinn Dave Coupland; Darren Fichardt, Lars Van Meijel frá Holland og Toby Tree frá Englandi. Allir léku þeir á samtals 13 undir pari, 415 höggum. Dredge, Coupland, Fichardt, Tree og Van Meijel hafa þegar verið kynntir.

Í dag verður kynntur sá sem landaði 19. sætinu en það er n-írski kylfingurinn Jonathan Caldwell.

Jonathan Caldwell fæddist 10. júní 1984 í Bangor, Englandi og er því 35 ára.

Caldwell er frá Clandeboye í N-Íralndi.

Hann er 1,75 m á hæð og 76 kg.

Caldwell spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of South Alabama (2004-2008).

Hann gerðist atvinnumaður í golfi eftir útskrift úr háskóla 2008.

Caldwell spilaði á Evróputúrnum 2009, en tókst ekki að halda korti sínu.

Hann spilaði næst á Áskorendamótaröð Evrópu árin 2009, 2010 og 2011.

Á árunum 2012 -2017 spilaði hann aðallega á PGA EuroPro Tour, þar sem hann sigraði í mótum árin 2016 and 2017.

Hann varð í 5. sæti á stegalistanum 2017 og ávann sér aftur sæti á Áskorendamótaröð Evrópu 2018 keppnistímabilið.

Eftir góðan árangur á lokaúrtökumótinu 2019 er Caldwell aftur komin á Evróputúrinn eftir 10 ára fjarveru. Hann er því ekki „nýr strákur“ heldur einn sem er að snúa aftur á mótaröðina, eftir að hafa áður spilað á henni.