Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Johannes Veerman (16/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.
Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-2, þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu og þrjá af þeim 4, sem deildu 13. sætinu en það eru: Johannes Veerman frá Bandaríkjunum, Garrick Porteous, frá Englandi, Jake McLeod, frá Ástralíu og Armitage frá Englandi. Aðeins á eftir að kynna Veerman, sem kynntur verður í dag. All
Allir léku þeir sem deildu 13. sætinu á samtals 14 undir pari, 414 höggum; Veerman (67-67-66-66) og uppreiknað stóð Veerman sig best af þeim, varð í 13. sæti.
Johannes Veerman fæddist 17. maí 1992 og er þvi 27 ára.
Hann er sonur Jan and Yanti Veerman og á eina systur Elisabeth. Fjölskyldan býr í Sugar Land, Texas.
Veerman byrjaði að spila golf 9 ára.
Hann var í Clements highschool og spilaði síðan golf með golfliði Texas A&M University, þaðan sem hann útskrifaðist 2015. Sjá má um afrek Veerman í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Síðan þá hefir Veerman á ýmsum mótaröðum þ.á.m. Asíutúrnum.
Eftir að ljóst var að Veerman hefði tryggt kortið sitt á Evróputúrinn sagði hann að það hefði verið draumur sinn að spila á þeirri mótaröð allt frá því hann sá BMW PGA Championship á Wentworth, sem krakki.
Sem stendur er Veerman í 284. sæti á heimslistanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
