Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2020 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Gregory Havret (27/28)

28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.

Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.

Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.

Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson, GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.

Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-28, þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu; þá 4, sem deildu 13. sætinu; þá 5, sem urðu T-8 og Aaron Cockerill, sem varð í 7. sæti. Eins hefir Golf 1 kynnt þá Rasmus Højgaard og Laurie Canter, sem urðu T-5 og S.S.P. Chawrasia, sem varð í 4. sæti og Alejandro Cañizares, sem varð í 3. sæti.

Nú verður kynntur sá, sem hafnaði í 2. sæti en það er franski kylfingurinn Grégory Havret. Hann er mikill reynslubolti og langt frá því að vera einhver nýgræðingur á Evróputúrnum.

Grégory Havret fæddist 25. nóvember 1976 og er því 43 ára.

Havret er 1,87 m á hæð og 82 kg.

Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1999 þá 23 ára.

Hann á 3 sigra í beltinu á Evróputúrnum, en þeir eru eftirfarandi:

1 4 nóv 2001 Atlanet Italian Open –20 (65-66-68-69=268) Átti 1 högg á Bradley Dredge Wales Bradley Dredge
2 15 júl 2007 Barclays Scottish Open –14 (68-64-70-68=270) Eftir umspil við Phil Mickelson United States Phil Mickelson
3 31 ágúst 2008 Johnnie Walker Championship at Gleneagles –14 (68-71-69-70=278) Átti 1 högg á Graeme Storm England Graeme Storm

Í dag býr Havret í Aix-en-Provence í S-Frakklandi.