
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Dale Whitnell (2/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Golf 1 mun byrja á þeim sem rétt sluppu inn á mótaröðina en þeir eru 4: Jean Babtiste Gonnet frá Frakklandi, sem hefir þegar verið kynntur; Dale Whitnell frá Englandi, sem kynntur verður í dag og Svíarnir Niklas Lemke og Rikard Karlberg. Þessir 4 deildu 25. sætinu, léku allir á samtals 12 undir pari, 416 höggum.
Dale Whitnell fæddist 9. ágúst 1988 í Colchester, Englandi og er því 31 árs.
Whitnell var m.a. í liði Breta&Íra í Walker Cup 2009, rétt áður en hann gerðist atvinnumaður í golfi, fyrir 10 árum síðan.
Hann var besti áhugamaður Breta í golfi 2009 og varð stigameistari enska golfsambandsins það ár (ens.: won the English Golf Union Order of Merit).
Hann spilaði í 1. móti sínu sem atvinnukylfingur á Evróputúrnum þ.e. á Alfred Dunhill Links Championship í október 2009 og varð í 36. sæti. Hann bætti árangur sinn í mótinu árið eftir, 2010, þegar hann varð í 4. sæti á Alfred Dunhill Championship í Leopard Creek S-Afríku, í fyrsta mótinu í The 2010 Race to Dubai.
Whitnell finnst gaman að fylgjast með öllum íþróttum, sérstaklega boltaíþróttum og nýtur þess að vera með fjölskyldu og vinum.
Í golfinu er hann sem stendur nr. 408 á heimslistanum.
Þetta var í 8. skipti (2008, (09), (10), (11), (13), (14), (16) 2019) sem Whitnell tók þátt í lokaúrtökumótinu fyrir Evróputúrinn og í þetta sinn gekk allt upp; hann spilar á mótaröðinni 2020!!!
- desember. 9. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kinga Korpak ——– 9. desember 2019
- desember. 9. 2019 | 09:00 Hver er kylfingurinn: Esther Henseleit?
- desember. 9. 2019 | 07:15 Langer-feðgar sigruðu á PNC Father/Son
- desember. 9. 2019 | 07:00 Sörenstam fyrsti kvenatvinnukylfingurinn til að taka þátt í PNC Father/Son Challenge
- desember. 8. 2019 | 20:00 Valdís Þóra aðeins 1 sæti frá 100% þátttökurétti á LET
- desember. 8. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágústa Sveinsdóttir – 8. desember 2019
- desember. 8. 2019 | 15:00 LET: Henseleit sigurvegari í Kenía, nýliði ársins og stigameistari!
- desember. 8. 2019 | 14:00 Evróputúrinn: Højgaard sigraði á Mauritius Open
- desember. 8. 2019 | 09:00 Matt Jones sigraði á Australian Open
- desember. 7. 2019 | 23:59 PGA: Stenson sigraði á Hero World Challenge
- desember. 7. 2019 | 20:00 Golfgrín á laugardegi 2019 (49)
- desember. 7. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Luke Donald ———- 7. desember 2019
- desember. 7. 2019 | 13:00 Evróputúrinn: 3 efstir og jafnir e. 3. dag Mauritius Open
- desember. 7. 2019 | 12:00 LET: Valdís Þóra T-27 e. 3. dag í Kenía
- desember. 7. 2019 | 07:00 GR: Jóhanna Lea hlaut háttvísibikarinn