Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Per Längfors (12/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Langfors frá Svíþjóð og Louis DeJager frá S-Afríku. Daníel Gavins og Guido Migliozzi hafa þegar verið kynntir og í dag er það Per Längfors frá Svíþjóð.

Per Längfors fæddist 16. ágúst 1994 og er því 24 ára.

Hann er 1,75 m á hæð.

Langfors gerðist atvinnumaður í golfi 20 ára, þ.e. 2014.

Á árunum 2016-2018 var Langfors á Nordic Golf League mótaröðinni og sigraði 4 sinnum á henni.

Í dag er hann nr. 650 á heimslistanum og kominn á mótaröð þeirra bestu í Evrópu.

Meðal áhugamála utan golfsins er að horfa á aksturskeppnir og spila borðtennis.