Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2018 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Gavin Moynihan (3/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Hér verður byrjað að kynna þann þá 8 sem deildu 20. sætinu þ.e. þá sem urðu T-20 á lokaúrtökumótinu. Búið er að kynna Ben Evans og  Kristoffer Reitan en í dag verður Gavin Moynihan kynntur.

Gavin Moynihan fæddist 17. september 1994 í Dublin á Írlandi og er því 24 ára.

Moynihan átti góðan áhugamannaferil; sigraði m.a. Irish Amateur Open Championship árin 2012 og 2015 og tók tvívegis þátt í Walker Cup.

Hann lék um tíma í bandaríska haskólagolfinu með liði University of Alabama, en hætti á 2. ári sínu þar (þ.e. sem sophomore).

Moynihan gerðist atvinnumaður þegar eftir Walker Cup 2015 og spilaði á fyrsta móti sínu sem atvinnumaður á Opna Ítalska 2015.

Árið 2016 náði hann niðurskurði á Opna írska og varð T-3 á Open La Pinetina á the Alps Tour.

Hann sigraði í fyrsta sinn á móti sem atvinnumaður í apríl 2017, þegar hann vann the Lookers Championship á PGA EuroPro Tour.

Í mánuðinum þar á eftir varð hann í 2. sæti áthe Andalucía Costa del Sol Match Play 9, á Áskorendamótaröð Evrópu, en hann tapaði 2&1 fyrir Aaron Rai í úrslitunum.

Nú er Moynihan komin með kortið sitt á Evróputúrnum og spilar meðal þeirra bestu í Evrópu 2019.