Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Pontus Videgren (32/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú nýlega voru kynntir þeir sem deildu 12. sætinu á samtals 16 undir pari en það voru: Pep Angles og Gonzalo Fernandez-Castaño frá Spáni og Laurie Canter frá Englandi. Síðan voru þeir 3 kynntir sem deildu 9. sætinu, sem léku á 17 undir pari, hver en það voru þeir Josh Geary, frá Ástralíu; Mark Foster frá Englandi og Connor Syme frá Skotlandi. Síðast var sá kynntur sem var einn í 8. sætinu á samtals 18 undir pari, en það var Svíinn Kristoffer Broberg.
Sex „strákar“ deildu með sér 2. sætinu en það voru: Jacques Kruyswijk frá S-Afríku; Andrea Pavan, frá Ítalíu; Pontus Videgren, frá Svíþjóð; Anders Hansen og Jeff Winther,f rá Danmörku og Charlie Ford, Englandi, en þeir léku allir á samtals 19 undir pari, hver.
Allir hafa þegar verið kynntir að undanskildum Pontus Videgren og verður hann kynntur í dag.
Pontus Videgren fæddist 14. október 1990 í Danderyd, Svíþjóð og er því 27 ára.
Hann er 1,74 m á hæð og 76 kg.
Í Svíþjóð er Pontus í Stockholms Golfklubb Kevinge og á þar aldursmet, en hann var yngsti klúbbmeistari klúbbsins, aðeins 13 ára, 2003.
Sem áhugamaður tók Pontus þátt í ýmsum liðakeppnum f.h. Svíþjóð þ.e.: Amateur Eisenhower Trophy 2008, 2010 og 2012; St Andrews Trophy 2010 (sigraði) Palmer Cup 2010, 2011, 2012 (sigraði) og 2013.
Pontus var í bandaríska háskólagolfinu og lék með liði UCLA í Kaliforníu.
Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2013.
Áhugamálin fyrir utan golfið eru tennis og íshokkí.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
