Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Matthew Baldwin (12/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú hafa verið kynntir þeir 9 sem deildu 25. sætinu og rétt sluppu inn á Evróputúrinn.
Nú hafa Jonathan „Jigger“ Thomson frá Englandi og Henric Sturehed frá Svíþjóð verið kynntir, en þeir eru tveir af 7 sem deildu 18. sætinu. Þessir 7 spiluðu allir á samtals 14 undir pari. Í kvöld verður Matthew Baldwin kynntur.
Matthew Baldwin fæddist 26. febrúar 1986 og er því 31 árs.
Baldwin er frá Southport í Lancashire á Englandi – sama heimabæ og nr. 1 í Evrópu Tommy Fleetwood er frá.
Hann er 1,8 m á hæð og 79 kg.
Baldwin byrjaði að spila golf 3 ára þegar afi hans tók hann á æfingasvæðið til þess að slá bolta.
Hann spilaði fyrir England Boys í tvö ár og var í liði Íra/Breta sem sigraði Jacques Léglise bikarinn árið 2004. Hann spilaði síðan 3 ár með elítunni á Englandi og tók m.a. þátt í Home Internationals 2007 áður en hann gerðist atvinnumaður í golfi 2008.
Árið 2009 keppti Baldwin á Alps Tour og varð í 23. sæti á stigalistnum þar, eftir að hafa náð 6 topp-10 áröngrum.
Hann keppti í 13 mótum á Áskorendamótaröð Evrópu 2010 og var kominn með kortið sitt á Áskorendamótaröðinni 2011.
Árið 2011 sigraði Olsen á Fred Olsen Challenge de España mótinu á Áskorendamótaröðinni, sem tryggði þar með kortið sitt á mótaröð nr. 1 í Evrópu, Evrópumótaröðinni
Baldwin átti frábært nýliðaár þar, 2012, komst í m.a. í gegnum niðurskurð í 2 risamótum eftir að hafa komist í gegnum úrtökumót fyrir Opna bandaríska og Opna breska.
Afi Baldwin, Ronald Ryder, var í liði Englands og Bretlands í rugby og varð þekktur í Warrington.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
