Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Mark Foster (25/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú nýlega voru kynntir þeir sem deildu 12. sætinu á samtals 16 undir pari en það voru: Pep Angles og Gonzalo Fernandez-Castaño frá Spáni og Laurie Canter frá Englandi.
Í dag verður fram haldið að kynna þá 3 sem deildu 9. sætinu, en þeir léku allir á 17 undir pari; en þetta eru þeir Josh Geary, frá Ástralíu; Mark Foster frá Englandi og Connor Syme frá Skotlandi. Bara á eftir að kynna Mark Foster og verður hann kynntu rí dag.
Mark Foster fæddist í Worksop í Englandi, 1. ágúst 1975 og er því 42 ára.
Hann er 1,88 m á hæð og 89 kg.
Mark er kvæntur konu sinni Sophie.
Mark átti farsælan feril sem áhugamaður í golfi og meðal hápunkta á áhugamannsferli hans eru eftirfarandi sigrar:
1992 English Boys Stroke Play Championship
1994 English Amateur
1995 English Amateur, Brabazon Trophy (jafn Colin Edwards)
Mark gerðist atvinnumaður í golfi 1995 og á 4 sigra í beltinu sem slíkur: 3 á Áskorendamótaröð Evrópu: 1997 Interlaken Open
2001 Stanbic Zambia Open og 2001 Charles Church European Challenge Tour Championship og auk þess einn á Evróputúrnum þ.e. á Dunhill Championship 2003. Fyrstu ár sín sem atvinnumaður var Foster plagaður af bakverkjum og náði því ekki þeim árangri sem efni stóðu til.
Besti árangur Mark Foster í risamótum er T-28 árangur í Opna breska árið 2003.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
