Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2017 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Cristofer Blomstrand (1/33)

Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.

Íslenskur kylfingur var s.s. allir vita meðal keppenda, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, en hann komst því miður ekki í þennan 33 kylfinga hóp.

Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.

9 kylfingar deildu með sér 25. sætinu í ár; léku allir hringina 6 á samtals 13 undir pari. Til samanburðar má geta að Birgir Leifur lék 4 hringi á samtals 5 yfir pari, en hann komst ekki gegnum niðurskurð eftir 4 hringi.

Byrjað verður í dag á að kynna Svíann Cristofer Blomstrand, en hann var einn af þeim 9 heppnu sem hlutu kortið sitt.

Cristofer Blomstrand er fæddur í Malmö, Svíþjóð, 9. desember 1991 og því 24 ára.

Hann er 1,82 m á hæð og 72 kg.

Blomstrand gerðist atvinnumaður í golfi 2011.

Hann býr í Skanor, í Svíþjóð og golfklúbburinn sem hann er í er Falsterbo.

Hann er kvæntur Emmu og þau eiga saman soninn Vincent, sem fæddist 2015 og er því 2 ára.

Blomstrand hefir reynt allt frá árinu 2013 að komast á Evróputúrinn og nú loks tókst það!

Hann lék áður á Nordic Golf League, þar sem Axel Bóasson, Haraldur Magnús Franklín og Andri Þór Björnsson, hafa spilað með góðum árangri nú í ár.

Eins hefir Blomstrand keppt á Áskorendamótaröð Evrópu og Sólskinstúrnum suður-afríska.

Sem stendur er Blomstrand nr. 477 á heimslistanum.

Meðal áhugamála Blomstrand utan golfsins er að fara í verslunaferðir, fara á fiskveiðar eða verja tíma með fjölskyldunni.