
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Andrea Pavan (27/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú nýlega voru kynntir þeir sem deildu 12. sætinu á samtals 16 undir pari en það voru: Pep Angles og Gonzalo Fernandez-Castaño frá Spáni og Laurie Canter frá Englandi. Síðan voru þeir 3 kynntir sem deildu 9. sætinu, sem léku á 17 undir pari, hver en það voru þeir Josh Geary, frá Ástralíu; Mark Foster frá Englandi og Connor Syme frá Skotlandi. Síðast var sá kynntur sem var einn í 8. sætinu á samtals 18 undir pari, en það var Svíinn Kristoffer Broberg.
Í dag verður byrjað að kynna þá 6 „stráka“ sem deildu með sér 2. sætinu en það voru: Jacques Kruyswijk frá S-Afríku, Andrea Pavan, Ítalíu; Pontus Videgren, Svíþjóð; Anders Hansen og Jeff Winther,frá Danmörku og Charlie Ford, Englandi, en þeir léku allir á samtals 19 undir pari, hver.
Í dag verður byrjað á að kynna Andrea Pavan.
Andrea Pavan fæddist 27. apríl 1989 í Róm, Ítalíu og er því 28 ára. Hann er 1,91 m á hæð og 84 kg.
Pavan varð 16 ára, ítalskur meistari áhugamanna í höggleik 2005 og í framhaldi af því ákvað hann að taka þátt í bandaríska háskólagolfinu. Hann var í 4 ár við nám í Texas A&M og spilaði með háskólaliðinu, þ.á.m. vann hann einstaklingshluta móts árið 2010 og var hluti liðs sem sigraði árið 2009 NCAA Men’s Golf Championship.
Hann átti farsælan áhugamannaferil; vann fjölda móta á Ítalíu og varð m.a. í 2. sæti í hinu virta European Amateur.
Atvinnumennskan
Pavan gerðist atvinnumaður árið 2010. Honum tókst ekki að komast í gegnum lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröðina og PGA Tour og spilaði fyrst í boði styrktaraðila og á Áskorendamótaröðinni 2011. Það var 2. sætið á Kärnten Golf Open, þar sem hann var í forystu mestallt mótið, sem tryggði honum kortið á Áskorendamótaröðinni. Fyrsti sigur Pavan á Áskorendamótaröðinni kom snemma árs á Norwegian Challenge. Síðan vann Pavan aftur á Apulia San Domenica Challenge Tour Grand Final og tryggði hann þannig kortið sitt á Evrópumótaröðinni 2012.
Þar gekk ansi brösulega þannig að Pavan hefir þurft að taka þátt í lokaúrtökumótum Q-school Evrópumótaraðarinnar bæði 2012 og 2014. Árið 2012 komst Pavan ekki gegnum lokaúrtökumótið og varð að spila aftur á Áskorendamótaröðinni árið 2013. Honum gekk vel – hann sigraði þannig 7. júlí 2013 á Bad Griesbach Challenge Tour og 8. september 2013 á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne og var aftur farinn að spila á Evrópumótaröðinni 2014. Aftur gekk ekki sem best og varð Pavan því aftur að fara í lokaúrtökumót Q-school, með þeim árangri eins og áður segir að hann varð í 23. sæti, þannig að hann spilaði á Evrópumótaröðinni 2015.
Það ár 2015 tók Pavan þátt í 21 móti á Evrópumótaröðinni og var besti árangur hans T-20 árangur á AfrAsia Bank Mauritius Open. Hann komst 12 sinnum gegnum niðurskurð og það dugði ekki til þess að halda sér á Evróputúrnum 2016 og það ár og reyndar einnig í fyrra, 2017, spilaði Pavan á Áskorendamótaröðinni.
En nú er öldin önnur. Eftir glæstan T-2 árangur á lokaúrtökumóti Evróputúrsins er Pavan kominn með kortið sitt og full spilaréttindi á Evróputúrnum.
Sem stendur er Pavan nr. 722 á heimslistanum.
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster