Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2014 | 08:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Paul Maddy (15/27)

Paul Maddy varð í 13. sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á PGA Catalunya í Girona á Spáni, 15.-20. nóvember 2014 og þar sem Birgir okkar Leifur Hafþórsson lék með en komst því miður ekki áfram, að þessu sinni.

Paul Maddy fæddist 9. maí 1981 í Cambridge á Englandi og er því 33 ára.

Maddy hefir tekið þátt í Q-school Evrópumótaraðarinnar á hverju ári frá árinu 2004 og þetta er í fyrsta sinn sem hann hlýtur kortið sitt á Evrópumótaröðina.

Maddy býr í Royston í Englandi og er þar í Gog Magog golfklúbbnum.

Hann átti mjög erfitt á 2. stigi úrtökumótsins þar sem honum reyndist erfiður í skauti 1. hringur hans upp á 76 högg, sem varð til þess að hann var í 62. sæti af 70 keppendum.  Hann vann sig upp í lokaúrtökumótið með 3 glæsiskorum upp á 65 högg 3 daga í röð og tók síðan 13. kortið, sem segir á lokaúrtökumótinu.

Ferill Maddy er fremur óhefðbundinn þar sem hann var orðinn 27 ára þegar hann gerðist atvinnumaður en hann var þar áður búinn að spila í 4 ár á ýmsum minni golfmótaröðum.

Hann varð efstur á EuroPro Tour 2012 og vann sér þar með inn kortið sitt á Áskorendamótaröð Evrópu og eftir 2 stöðug tímabil þar, er hann nú kominn á einu bestu mótaröð heims.

Maddy var enn með 3 í forgjöf 22 ára, en þá kláraði hann gráðu í stærðfræði og tölvufræði í háskóla.

Eftir háskólaár sín ákvað hann að taka sér ársfrí, fór til Spánar að spila golf og hefir ekki litið tilbaka síðan …. og núna er hann kominn á Evrópumótaröðina keppnistímabilið 2014-2015.

Mesta verðlaunafé sem hann hefir unnið sér inn á Evrópumótaröðinni eru € 1.175,- sem þykir ekki mikið.

Áhugamál Maddy eru íþróttir almennt og hann er sem stendur nr. 813 á heimslistanum.