Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Joakim Lagergren (12/27)
Sænski kylfingurinn Joakim Lagergren varð í 16. sæti á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fór á PGA Catalunya, í Girona á Spáni og lauk 20. nóvember s.l.
Lagergren er því aftur kominn með kortið sitt á Evrópumótaröðina
Joakim Lagergren fæddist 15. nóvember 1991 og er því 23 ára. Hann á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar og Lorena Ochoa og Ottó „okkar“ Sigurðsson. Joakim byrjaði að spila golf 6 ára þegar stjúpfaðir hans, Ola Eliasson, varð fjölskyldumeðlimur. Hann hlaut innblástur með því að fylgja Eliasson eftir á golfvellinum á mótum og ákvað að hann ætlaði að verða eins og stjúpi sinn, en hann er enn þjálfari Joakim.
Lagergren gerðist atvinnumaður 2010 og byrjaði ferilinn í the Nordic League. Með þremur sigrum á þeirri mótaröð ávann hann sér kortið sitt á Áskorendamótaröðinni 2011 og hann varð 86. á stigalistanum, en besta frammistaða hans var í Norwegian Challenge, þar sem hann landaði 6. sætinu. Hann vann undanúrtökumótið í Q-school á El Valle Golf Resort, áður en hann tók 12. kortið á lokaúrtökumótinu í Girona 2011. Í ár varð Joakim aftur að fara í Q-school, en stóð sig lakar en í fyrra skiptið, endaði sem áður segir í 20. sæti.
Áhugamál Joakim fyrir utan golfið er tónlist en hann er mikill aðdáanda sænsku hljómsveitarinnar Swedish House Mafia.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
