Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Espen Kofstad (16/27)
Það var norski frændi okkar Espen Kofstad sem varð í 12. sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni í nóvember s.l.
Birgir Leifur okkar Hafþórsson spilaði einnig í lokaúrtökumótinu en komst því miður ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.
Espen Kofstad er fæddur 11. ágúst 1987 í Osló, Noregi og er því 27 ára.
Kofstad byrjaði að spila golf 5 ára á golfvelli í Svíþjóð sem var 15 mínútna bátsferð frá sumarbústað Kofstad-fjölskyldunnar í Noregi.
Hann fékk golfbakteríuna snemma og var snemma farinn að taka þátt í áhugamannamótum. Ferill hans hefði þó getað tekið aðra stefnu hefði hann farið í fótspor móður sinnar, sem var Evrópumeistari kvenna á skíðum í kringum 1970.
Kofstad sigraði glæsilega á Apulia San Domenico Grand Final 2012, en með því varð hann efstur á Áskorendamótaröðinni það ár og er það í eina skiptið frá 2010 að Kofstad hefir ekki þurft í Q-school.
Hann vann síðan fyrsta sigur sinn sem atvinnumaður fyrr á 2012 tímabilinu þ.e. the Double Tree by Hilton Acaya Open, þar sem hann lauk hringnum með erni og fugli og átti 1 högg á JB Hansen.
Kofstad varð í 3. sæti í the English Challenge 7 dögum síðar og varð t-5 í the Finnish Challenge vikuna þar á eftir, en með sigrinu á Ítalíu hlaut hann mikið sjálfstraust.
Á fyrsta keppnistímabili sínu á Evróputúrnum varð hann 1 sinni meðal efstu 10 þ.e. á Open de España, en það var samt ekki nóg til þess að hann héldi korti sínu.
Tími hans frá Evróputúrnum var þó stuttur vegna frábærs árangurs hans á lokaúrtökumótinu 2014 þar sem hann hlaut s.s. segir 12. kortið í PGA Catalunya Resort.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
