Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2014 | 15:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Daníel Woltman (2/27)

Þann 20. nóvember 2014 lauk lokaúrtökumótinu á PGA Catalunya golfvellinum í Girona á Spáni og voru alls 27 „nýir“ strákar sem fengu eða endurnýjuðu keppnisrétt sinn á Evrópumótaröðinni.

Sá sem varð í 26. sæti er Bandaríkjamaðurinn Daníel Woltman og var hann jafnframt eini Bandaríkjamaðurinn að þessu sinni, sem komst í gegnum lokaúrtökumótið.  Þetta er í 1. sinn sem Woltman spilar á Evrópumótaröðinni.

Daníel Woltman er fæddur 26. september 1986 í Beaver Dam, Wisconsin og er því 28 ára.  Hann er fyrrum ríkismeistari í golfi í Wisconsin (þ.e. var bæði State Amateur og State Open Champion).

Woltman útskrifaðist frá University of Wisconsin árið 2009, eftir að hafa leikið með skólaliðinu í bandaríska háskólagolfinu í 4 ár.  Sama ár gerðist hann atvinnumaður í golfi og spilaði á ýmsum minni mótaröðum.

Árið 2011 var hann með takmarkaðan spilarétt á Web.com Tour og eins hefir Woltman leikið í mótum á OneAsia Tour.

Ýmis atriði um Woltman:

Uppáhaldsgolfvöllur Woltman er Southern Hills CC í Tulsa, Oklahoma, en sá völlur sem hann myndi langa til þess að spila er Augusta National.

Uppáhaldslið hans eru the Wisconsin Badgers og the Green Bay Packers.

Uppáhaldssjónvarpsþáttur Woltman er“Entourage,“ og „Tin Cup“ er uppáhaldskvikmynd hans.

Uppáhaldsmatur Woltman er Pizza.

Tiger Woods og Kobe Bryant eru uppáhaldsíþróttamenn Woltman.

Uppáhaldsfrístaður Woltman er hver sá staður sem er með strönd.

Loks er draumahollið sem Woltman myndi langa til þess að spila í pabbi hans og 2 vinir.