Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2014 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Alessandro Tadini (3/27)

Í 25. sæti af 27 sem komust inn á Evrópumótaröðina eftir lokaúrtökumótið í Girona, Spáni þann 20. nóvember s.l. var ítalski kylfingurinn Alessandro Tadini, en hann er einn af 3 ítölskum kylfingum sem komust inn á Evróputúrinn að þessu sinni.

Alessandro Tadini  fæddist 30. nóvember í Borgomanero á Ítalíu 1973 og er því 41 árs.

Tadini gerðist atvinnumaður í golfi 1994.

Hann komst á Evróputúrinn 2003, eftir að hafa gert 6 tilraunir til þess að komast í gegn í Q-school.

Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé á nýliðaári sínu þannig að hann spilaði næsta keppnistímabil á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour).

Árið 2004 varð hann í 2. sæti á Challenge Tour þannig að hann komst aftur á Evrópumótaröðina og hélt korti sínu þar til loka árs 2007, þegar hann féll aftur niður í Áskorendamótaröðina.

Hann kom sér upp aftur, varð í 7. sæti árið 2008, en náði ekki að vera á topp 120 í Race to Dubai árið 2009, þannig að hann spilaði aftur á Áskorendamótaröðinni 2010.

Tadini hefir sigrað þrívegis á Áskorendamótaröðinni, fyrsta skipti á  Costa Rica Open, 2008, í 2. sinn á Oceânico Group Pro-Am Challenge sama ár og svo í Credit Suisse Challenge, árið 2010.

Besta keppnistímabil Tadini til þessa á Evrópumótaröðinni var 2005, þegar hann var í 98. sæti á Order of Merit, en í móti er besti árangurinn T-2 á Aa St. Omer Open, árið 2004.