Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 08:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Mikko Korhonen (5/27)

Mikko Korhonen er eini Finninn, sem náði inn á Evrópumótaröðina í gegnum lokaúrtökumót  Q-school, sem fram fór í Girona 10.-15. nóvember s.l.  – Hann rétt slapp inn varð í 22.-27. sæti.

Mikko lék á 9 undir pari, 419 höggum (69 71 68 70 70 71) og fékk að launum € 1.937,-

Mikko komst inn á Evrópumótaröðina í fyrra eftir að hafa orðið í 9. sæti í Q-school, en hann hefir þurft í Q-school á hverju ári frá því hann gerðist atvinnumaður 2004 til þess að endurnýja kortið sitt.

Golf 1 skrifaði eftirfarandi kynningu á Korhonen í fyrra og á hún allt eins við nú í ár. Sjá með þvi að SMELLA HÉR: