Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Marco Crespi (25/27)
Í kvöld verður kynntur sá kylfingur sem tók bronsið þ.e. varð í 3. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013.
Á morgun ljúkum við árinu og kynningu á nýju „strákunum“ sem hlutu kortin sín í Q-school Evróputúrsins fyrir 2014 með því að kynna þá sem urðu í 1. og 2. sæti.
Það var Ítalinn Marco Crespi sem varð í 3. sæti í Q-school í ár, lék á samtals 15 undir pari, 413 höggum (71 70 67 68 67 70) og hlaut € 9.000,- í verðlaunafé.
Marco Crespi fæddist í Monza á Ítalíu 5. nóvember 1978 og er því 35 ára. Í dag býr hann í Arcore á Ítaliu. Hann byrjaði í golfi fremur seint 17 ára. Pabbi hans hefir löngum verið kaddýinn hans og bróðir hans er golfkennari. Crespi gerðist atvinnumaður í golfi 2002 og hefir síðan þá reynt 11 sinnum að komast á Evrópumótaröðina en það tókst ekki fyrr en í ár …. og þá með stæl …. bronssætinu!!!
Á árunum 2006-2009 og svo 2012-2013 spilaði Crespi played á Áskorendamótaröðinni. Hann sigraði 2012 í Telenet Trophy og árið 2013 í Mugello Tuscany Open, hvorutveggja mót á Áskorendamótaröðinni, en tókst í hvorugt skiptið að tryggja sér sæti meðal þeirra sem komust á Evrópumótaröðina í gegnum Áskorendamótaröðina.
Eftir að hafa gulltryggt kortið sitt á Evróputúrnum með 3. sætinu í Q-school, gekk Crespi bara vel í fyrstu mótum 2014 keppnistímabilsins. Þannig deildi hann m.a. 4. sætinu í SA Open ásamt Charl Schwartzel, nú nýverið og með fleiri svona topp-5 áröngrum verður honum ekki skotaskuld að halda kortinu sínu á Evrópumótaröðinni.
Á Ítalíu er Crespi í GC Milano – Colmar Golf. Hann er kvæntur konu sinni Elenu (g. 2012) og eiga þau eina dóttur, Carlottu (f. 2012).
Meðal áhugamála Crespi utan golfsins eru veraldarvefurinn og bílar.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
