Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Jens Dantorp (14/27)
Í dag verður fram haldið að kynna þá 5 stráka, sem deildu 12.-16. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013.
Þetta voru þeir Patrik Sjöland, Brinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath.
Allir léku þeir á samtals 11 undir pari, 417 höggum og hlutu € 3.170 í verðlaunafé. Nú þegar hafa Sjöland og Paolini verið kynntir en sá sem kynntur verður í dag varð í 14. sæti – Jens Dantorp. Dantorp er einn af 3 sænskum kylfingum sem komust á Evróputúrinn að þessu sinni í gegnum Q-school en hinir voru Patrik Sjöland og Mikael Lundberg (varð í 5.-7. sæti).
Dantorp spilaði á (66 68 68 72 73 70).
Jens Dantorp fæddist í Malmö, Svíþjóð 28. apríl 1989 og er því 24 ára. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2008 og er sem stendur nr. 352 á heimslistanum. Allt frá því hann gerðist atvinnumaður hefir hann tekið þátt í Q-school, en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemst í gegn. Dantorp býr í fæðingarstað sínum Málmey (Malmö) og er i Flommen GK (golfklúbbnum).
Meðal áhugamála Dantorp er að spila á gítar, sem hann segist ekki hafa mikinn tíma til lengur. Uppáhaldshljómsveitir hans eru Dire Straits og Red Hot Chilli Peppers.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
