Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Gary Stal – (24/27)
Í dag verða kynntir þeir „strákar“, sem urðu í 3. og 4. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Á morgun ljúkum við árinu og kynningu á nýju „strákunum“ sem hlutu kortin sín í Q-school Evróputúrsins fyrir 2014 með því að kynna þá sem urðu í 1. og 2. sæti.
Byrjað verður á kynningu á Gary Stal sem varð í 4. sæti.
Hann lék á samtals 14 undir pari, 414 höggum (71 68 69 68 68 70) og hlaut € 7.200,- í verðlaunafé.
Gary Stal fæddist í Decines nálægt Lyon í Frakklandi 9. febrúar 1992 og er því 21 árs og litlu eldri en hinn Frakkinn, sem komst að þessu sinni á Evrópumótaröðina, Adrien Saddier. Stal gerðist atvinnumaður í golfi 2012. Áður en hann gerðist atvinnumaður var hannm.a. búinn að sigra French Amateur Championship, þ.e. franska áhugamannameistaramótið í höggleik árið 2011 og átti 8 högg á þann sem næstur var. Áhugamannsferillinn var einkar glæsilegur.
Heima í Frakklandi er Gary Stal í GC de Lyon.
Hann spilaði í fyrra á Áskorendamótaröðinni og vann fyrsta mót sitt, þar sem hann tók þátt í boði styrktaraðila, Kärnten Golf Open, í júní 2012. Strax í mánuðnum þar á eftir nældi Stal sér í 2. sigur sinn á Credit Suisse Challenge, þar sem hann sigraði Alexandre Kaleka í bráðabana og fékk kortið sitt á Evróputúrinn fyrir keppnistímabilið 2013. Honum gekk heldur brösulega þar og varð að fara í Q-school og flaug í gegn sbr. 4. sætið! Pabbi Stal er kaddý hjá honum.
Meðal áhugamála Gary Stal eru tónlist og að spila tennis.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
