Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2013 | 16:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: John Parry – (28. grein af 28)

Þá er komið að síðustu greininni, síðustu kynningunni á nýju strákunum á Evróputúrnum 2013.  Nú á bara eftir að kynna sigurvegara lokaúrtökumóts Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á PGA Catalunya golfvöllunum í Girona á Spáni 24.-29. nóvember s.l., en það var Englendingurinn JOHN PARRY!!!  Hann vann afgerandi sigur var samtals á 4 högga betra skori en sá sem næstur kom Svíinn Mikael Lundberg, sem þegar hefir verið kynntur.

John Anthony Parry fæddist 17. nóvember 1986 í Harrogate á Englandi og er því tiltölulega nýorðinn 26 ára. Hann gerðist atvinnumaður árið 2007 og átti þar áður glæstan áhugamannaferil; vann m.a. danska og spænska áhugamannameistaramótin og var fulltrúi Breta og Íra í Walker Cup.

Parry vann Allianz Golf Open Grand Toulouse á Áskorendamótaröðinni 2009. Það keppnistímabil varð hann í 14. sæti á Áskorendamótaröðinni og vann sér í 1. sinn kortið sitt á Evróputúrnum. Á nýliðaári sínu, 2011 vann hann Vivendi Cup, fyrsta skiptið sem mótið var haldið.  Árið 2012 var ekki nógu gott og því varð Parry að fara aftur í Q-school, með þessum líka glæsilega árangri! …. og flaug hann inn á Evrópumótaröðina 2013. Alls hefir Parry sigrað 4 sinnum á atvinnumanns ferli sínum en fyrir utan fyrrgreinda sigra á Q-school 2012, Áskorendamótaröðinni og Evróputúrnum sigraði hann árið 2008 á Ladbrokes Masters á La Cala, á Spáni en mótið var hluti PGA EuroPro Tour.

John Parry býr í Knaresborough, í Englandi. Helstu áhugamál hans eru íþróttir almennt og tónlist. Sem stendur er Parry nr. 609 á heimslistanum.