![](https://www.golf1.is/wp-content/uploads/2019/05/Julien+Guerrier+European+Tour+Qualifying+School+YoPmcn6ZxPMl.jpg)
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2012 (9. grein af 21): Augustin Domingo, Mikael Lundberg og Julien Guerrier
Í kvöld verða 3 strákar kynntir sem deildu 20. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, í Girona á Spáni s.l. desember. Allir hlutu þeir € 2.203 í verðlaunafé. Þetta eru Spánverjinn Augustin Domingo, sem varð í 20. sæti (spilaði síðasta hring á 67 höggum); Svíinn Mikael Lundberg, sem varð í 21. sæti (spilaði síðasta hring á 70 höggum) og Frakkinn Julien Guerrier, sem búinn er að slá í gegn á nýliðaári sínu (hann hlaut 22. kortið, en spilaði síðasta hring á 71 höggi).
Byrjum á Julien Guerrier.
Julien Guerrier fæddist í Evreux, Frakklandi 1. júlí 1985 og er því 27 ára. Julien kemur úr fjölskyldu með ríkri hefð afreka á sviði ýmissa íþrótta. Afi hans var heimsmeistari í skylmingum; amma hans spilaði körfubolta með franska landsliðinu; pabbi hans spilaði fótbolta í 2. deildinni í Frakklandi. Julien byrjaði í golfi í barnaskóla, en var í fyrstu í uppreisn gegn hefðum íþróttarinar þar til kennarinn hans – sem var seglbrettamaður – sýndi honum fram á að golf væri „cool“.
Hann var fljótt kominn í 0 í forgjöf og átti frábæran áhugamannaferil, vann m.a. Amateur Championship 2006. Julien gerðist atvinnumaður eftir Masters árið 2007, en átti í erfiðleikum framan af. Hann þakkar Alain Alberti, sem líka þjálfar Raphaël Jacquelin, það að allt snerist til betri vegar hjá honum. Julien varð í 72. sæti á stigalista Alps Tour áður en hann kom til Alberti, en sigraði 1 sinni og varð 7 sinnum meðal 10 efstu í síðustu 8 mótunum, sem hann tók þátt í, sem tryggði honum að hann komast „upp í 2. deild“ þ.e. á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour) árið 2008. Hann komst nálægt því að sigra í 1. sinn á Áskorendamótaröðinni þ.e. á SK Golf Challenge, en tapaði í umspili.
Julien komst á Evróputúrinn eftir að hafa orðið í 16. sæti stigalista Áskorendamótaraðarinnar 2009 og bætti síðan stöðu sína í Q-school, en lauk 2010 keppnistímabilinu í 122. sæti Race to Dubai og spilaði því aftur á Áskorendamótaröðinni 2011. Hann varð því miður ekki meðal 20 efstu á Áskorendamótaröðinni 2011, en tók eins og áður segir 22. kortið í Q-school og spilar á Evrópumótaröðinni, keppnistímabilið 2012.
Svíinn Mikael Lundberg hlaut 21. kortið.
Mikael Lundberg fæddist í Helsingborg, Svíþjóð 13. ágúst 1973 og er því 38 ára. Mikael gerðist atvinnumaður í golfi 1997. Hann á 3 börn: Lukas (f. 2000); Ölvu (2002) og Charlie (2005). Meðal áhugamála Mikaels eru íþróttir almennt.
Það var pabbi Mikael, Lars, sem er með 4 í forgjöf kynnti Mikael fyrir golfinu ungum að árum. Þegar Mikael var 17 ára var hann kominn með 0 í forgjöf. Hann spilaði í unglingalandsliði Svía 1988 og síðan karlalandsliði Svía ári síðar. Hann var fulltrúi Svíþjóðar í Eisenhower Trophy í París 1994. Eins var Mikael 1 ár í menntaskóla í Alabama á árunum 1993-1994, þar sem hann spilaði golf.
Ferill Mikaels hefir einkennst af ferðum í Q-school en þangað þurfti hann m.a. að fara árin 1996, 1997, 1998, 2004 og 2006 til þess að endurnýja kortið sitt með misjöfnum árangri. Hann hefir rokkað milli þess að spila á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour) og Evrópumótaraðarinnar.
Mikael hlaut fyrst kortið sitt á Evrópumótaröðina 2000 og hefir sigrað þar tvívegis þ.e. á Cadillac Russian Open 2005 á Le Meridien Moscow Country Club, sem Golf 1 hefir áður kynnt og má sjá kynninguna á golfvellinum HÉR: og Inteco Russian Open Golf Championship 2008. Alls á Mikael 6 sigra sem atvinnumaður.
Loks er hér kynning á Spánverjanum Augustin Domingo.
- júlí. 26. 2024 | 23:45 Evrópumót einstaklinga: Íslandsmeistarinn spilar ein íslensku keppendanna lokahringinn
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Íslandsmót golfklúbba: GA Íslandsmeistari í 2. deild kvenna
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Afmæliskylfingar dagsins: Guðmundur Arason og Lucinda Grímsdóttir – 26. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 21:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erla Pétursdóttir -25. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 20:30 PGA: Horschel dro sig úr 3M Open
- júlí. 25. 2024 | 20:00 Sports Illustrated með umfjöllun um Arctic Open á Akureyri
- júlí. 24. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Björn Ólafur Ingvarsson – 24. júlí 2024
- júlí. 24. 2024 | 11:00 GKB: Brynhildur og Andri Jón klúbbmeistarar 2024
- júlí. 24. 2024 | 09:00 Íslandsmótið 2024: Aron Emil hlaut Björgvinsskálina
- júlí. 24. 2024 | 07:00 GSE: Lovísa Huld og Hrafn klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 19:00 GVS: Heiður Björk og Helgi klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:50 GE: Halldóra Guðríður og Magnús klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:00 Íslandsmótið 2024: Hulda Clara sú fyrsta sem fær Guðfinnubikarinn
- júlí. 23. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Harris English —- 23. júlí 2024
- júlí. 23. 2024 | 12:06 Opna breska 2024: Hvað var í sigurpoka Xander Schauffele?