Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2012 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Lasse Jensen (2. grein af 28)

Lasse Jensen er annar af tveimur Dönum sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröðina fyrir keppnistímabilið 2013 í gegnum lokaúrtökumót European Tour, sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, 24.-29. nóvember s.l..  Reyndar sluppu dönsku kylfingarnir báðir rétt inn, en Lasse varð í neðsta sæti því 24. á lokaúrtökumótinu og hinn, Morten Örum Madsen, sem kynntur verður á morgun, í 16. sæti.

Lasse er fæddur í Hilleröd, Danmörku 6. september 1984 og er því nýorðinn 28 ára. Hann býr enn í Hillerod og er þar í Assebo golfklúbbnum. Lasse gerðist atvinnumaður í golfi 2003 og hefir á hverju ári síðan tekið þátt í Q-school Evrópumótaraðarinnar.

Lasse spilaði ekki á Evrópumótaröðinni í fyrra heldur Áskorendamótaröðinni og varð í 28. sæti á stigalistanum.

Hann er sem stendur nr. 643 á heimslistanum.

Meðal áhugamála Lasse eru bílar, fjármál, líkamsrækt og íþróttir almennt.

Til þess að fræðast meira um Lasse Jensen má skoða heimasíðu hans með því að SMELLA HÉR: