Ný golfregla kostaði Li ISK 12 milljónir!!!
Kínverski kylfingurinn Haotong Li var fyrsti atvinnukylfingurinn, sem varð illyrmislega fyrir barðinu á nýuppfærðum golfreglum þegar hann hlaut 2 högga víti á lokahring Omega Dubai Desert Classic.
Li hlaut vítið fyrir það sem dómarar töldu vera brot á nýrri reglu nr. 10-2b(4), sem bannar kylfusveini að standa fyrir aftan kylfing til þess að hjálpa honum við að finna púttlínu.
Li var búinn aðspila 71 holu í mótinu án athugasemda og átti bara eftir fuglapútt á 18. holu í Emirates golfklúbbnum í Dubaí, sem myndi hafa komið honum í T-3 á mótinu þ.e. hann hefði deilt 3. sætinu ásamt öðrum kylfingum. Þegar Li og kaddýinn hans, Mark Burrow, fóru í gegnum rútínu sína við að lesa púttið, þá var Burrow aðeins of lengi fyrir aftan Li og braut þar með regluna.
Nýja reglan er eitthvað á þessa leið í óopinberri þýðingu: „Þegar bolti kylfings er á púttflötinni, þá er ekkert víti skv. þessari reglu ef leikmaðurinn bakkar úr stöðunni og byrjar ekki að taka stöðuna aftur þar til eftir að kylfusveinn hans hefir farið úr þeirri staðsetningu.“
Brot á reglunni varðar 2 höggum í víti og fuglapútt Li og heildarstaðan 1 undir pari, 70 högg snerist í skolla á 18. og stöðuna 1 yfir pari, 73 högg á lokahringnum, en við það rann Li niður skortöfluna úr T-3, sem hann var í ásamt þeim Sergio Garcia, Ian Poulter, Alvaro Quiros og Paul Waring í T-12, sem hann endaði á að deila með Ernie Els, Shane Lowry og Byeong-hun An.
Fyrir vikið hlaut Li aðeins tékka upp á €45,234 í staðinn fyrir €135,774, sem hann hefði hlotið hefði hann deilt 3. sætinu með Garcia, Poulter, Quiros og Waring og mismunurinn er $103,241.33, eða u.þ.b. ISK 12 milljónir.
Li tjáði sig ekkert við fjölmiðla eftir vítið, en það var fjöldi annarra þekktra kylfinga, sem tjáði sig á félagsmiðlunum m.a. eftirfarandi 3 kylfingar, sem voru óánægðir með dóminn:
Eddie Pepperell
✔
@PepperellEddie
Hard to believe @haotong_li has been penalised for this. Frankly, I think it’s a shockingly bad decision and for the life of me I cannot see how Mike has lined Haotong up here
(Lausleg þýðing: Það er erfitt að trúa því að @haotong_li hafi hlotið víti fyrir þetta. Í hreinskilni sagt, ég held að þetta sé sjokkerandi slæm ákvörðun og þó líf mitt liggi við get ég ekki séð hvernig Mike gefið Haotong upp línuna hérna)
William McGirt
✔
@WilliamMcGirt
I’d have to call BS on the @haotong_li penalty today. He wasn’t even set to make a practice stroke much less an actual stroke at the ball. @USGA & @RandA get it wrong again. #killingthegame
(Lausleg þýðing: Ég gef skít í @haotong_li vítið í dag. Hann var ekki einu sinni að taka æfingapúttstroku hvað þá alvöru stroku við boltann. Bandaríska golfsambandið og R&A hafa rangt fyrir sér aftur. (Þeir eru að) drepa leikinn).
Richie Ramsay
✔
@RamsayGolf
2 things to happen Monday. Appreciate just how good @JustinRose99 is!!!!!! Look at the new rule given to @haotong_li. Clearly no intent to align, very marginal when stance and caddie move. Cost him well deserved WR points
(2 atriði gerðust nú á mánudegi. Mér líkar hversu góður @JustinRose99 er!!!!!! Lít á nýju regluna og hvernig henni var beitt gegn @haotong_li. Augljóslega enginn ásetningur að stilla upp, þetta var á mjög þröngu sviði þegar staðan og kaddýinn hreyfa sig. Þetta kostaði hann (Haotong Li) heimslista stig sem hann var vel að kominn).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
