Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2017 | 12:30

Nordic Golf League: Haraldur Franklín lauk keppni í 2. sæti í Danmörku – Stórglæsilegt!!!

Fjórir íslenskir kylfingar tóku þátt í Tinderbox Charity golfmótinu á Nordic Golf mótaröðinni en mótinu lauk í dag.

Þetta voru þeir Haraldur Franklín Magnús, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Ólafur Björn Loftsson, GKG.

Spilað var í Langesø golfklúbbnum í Danmörku, dagana 14.-16. júní 2017.

Haraldur Franklín Magnús stóð sig frábærlega; varð í 2. sæti og lék á samtals 9 undir pari, 204 höggum (65 67 72).

Í dag, lokahringinn lék Haraldur Franklín á 1 yfir pari vallar; fékk 3 fugla, og 11 pör og 4 skolla.

Ólafur Björn lauk keppni T-35 og fór upp um 5 sæti frá deginum áður þegar hann var  T-40, en á 2. degi færðist upp um 27 sæti frá því á 1. degi þar sem hann var T-67 – Ólafur Björn lék samtals á 2 yfir pari, 215 höggum (74 69 72).

Axel og Guðmundur Kristján komust ekki gegnum niðurskurð.

Sjá má lokastöðuna á Tinderbox Charity eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR: