Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 18:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst T-4 e. 2. dag í Svíþjóð

Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur úr GR tekur þátt í OnePartnerGroup Open, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.

Mótið fer fram í Knistad Golf & Country Club, í Skövde, Svíþjóð.

Guðmundur Ágúst er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum (71 65) og er T-4 eftir .2 dag.

Guðmundur Ágúst lék 2. hringinn á 7 undir pari, 65 glæsihöggum, skilaði hreinu skorkorti með 7 fuglum og 11 pörum. Stórglæsilegt!!!

Sjá má stöðuna í OnePartnerGroup Open með því að SMELLA HÉR: