Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst og Haraldur Franklín náðu niðurskurði á Lumine
Fimm íslenskir kylfingar hófu keppni á SGT Winter Series Lumine Hills Open, sem er mót vikunnar á Nordic Golf League.
Þetta voru þeir: Aron Bergsson, Andri Þór Björnsson, Axel Bóasson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús
Mótið fer fram í Lumine golfklúbbnum á Spáni, sem mörgum Íslendingnum er að góðu kunnur og spilað er á tveimur völlum Hills (par-72) og Lakes (par-71).
Mótið stendur 24. febrúar – 3. mars 2019 og þátttakendur eru 147.
Eftir 2. dag komust aðeins 2 af íslensku kylfinganna 5 gegnum niðurskurð; GR-ingarnir Guðmundur Ágúst og Haraldur Franklín.

Haraldur Franklín Magnús
Aðeins 40 efstu og þeir sem jafnir voru í 40. sætinu komust í gegnum niðurskurð og til að komast í gegnum niðurskurð í þetta sinn, varð að spila á samtals 1 yfir pari eða betur.
Guðmundur Ágúst lék á samtals 2 undir pari, 141 höggi (72 69) en hann lék Lakes völlinn seinni hringinn og er T-18.
Haraldur Franklín lék á samtals 1 undir pari, 142 höggum (68 74) en hann lék Hills völlinn seinni hringinn og er T-25.
Hinir eru úr leik og er sérlega leiðinlegt að Aron Bergsson komst ekki gegnum niðurskurð en hann var T-5 eftir fyrri daginn. Aron átti afleitan dag á Lakes vellinum, 82 högg, eftir að hafa spilað svo glæsilega fyrri daginn á 69 höggum á Hills vellinum og endaði á samtals 8 yfir pari.
Andri Þór Björnsson lék á 6 yfir pari (74 75) og Axel Bóasson á samtals 11 yfir pari (78 76) og eru þeir ásamt Aroni Bergssyni úr leik.
Sjá má stöðuna á SGT Winter Series Lumine Hills Open með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
