Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 11:55

Nordic Golf League: Fylgist með Guðmundi Ágúst á Harboe Open HÉR!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, er nú að leika 2. hring sinn á  Harboe Open mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.

Guðmundur lék 1. hring mótsins á 2 undir pari, 70 höggum; fékk 4 fugla og 2 skolla og var T-15 eftir 1. dag.

Eftir 6 holu leik á 2. hring er Guðmundur á 3 undir pari.

Skorið verður niður eftir hringinn í dag.

Fylgjast má með Guðmundi Ágúst á Harboe Open á skortöflu með því að SMELLA HÉR: