Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2017 | 15:00

Nordic Golf League: Axel T-4 og Haraldur T-15 e. 2. dag í Svíþjóð

Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR taka þátt í lokamóti Nordic Golf League, SGT Tourfinal.

Mótið fer fram í Kristianstads Golfklubb i Åhus, í Svíþjóð, dagana 12.-14. október 2017.

Aðeins efstu 30 kylfingar á stigalista Nordic Golf League fengu keppnisrétt í mótinu.

Eftir 2. dag er Axel T-4, hefir spilað á samtals 4 yfir pari, 144 höggum (73 71).

Haraldur Franklín hins vegar er T-15, hefir spilað á samtals 8 yfir pari, 148 höggum (72 76).

Sjá má stöðuna á SGT Tourfinal með því að SMELLA HÉR: