Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2017 | 22:00

Nordic Golf League: Axel og Haraldur hófu keppni í dag á Race to Himmerland

Atvinnukylfingarnir Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR hófu keppni í dag á Race to Himmerland mótinu, sem er næstsíðasta mót Nordic Golf League mótaraðarinnar.

Mótið stendur 5.-7. október 2017 og spilað er í Himmerland Golf & Spa Resort á 2 völlum: Backtee Course (par-73) og Garia Course (par-68).

Axel lék á Backtee Course og var á 3 undir pari, 70 höggum og er T-12 e. 1. dag; fékk 5 fugla og 2 skolla.

Haraldur Franklín lék 1. hring einnig á Backtee Course  á 9 yfir pari, 82 höggum og er í síðasta sæti e. 1. dag þ.e. í 74. sæti.

Efstur eftir 1. dag er Svíinn Rasmus Holmberg, en hann lék á 6 undir pari á Garia Course og kom því í hús á 62 höggum.

Sjá má stöðuna í Race to Himmerland mótinu með því að SMELLA HÉR: