Haraldur Franklín Magnús, GR t.v. og Axel Bóasson, GK, t.h. Mynd: GSÍ
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2017 | 19:00

Nordic Golf League: Axel lauk keppni T-2 og Haraldur Franklín í 10. sæti í Svíþjóð!!!

Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR tóku þátt í lokamóti Nordic Golf League, SGT Tourfinal.

Mótið fór fram í Kristianstads Golfklubb i Åhus, í Svíþjóð, dagana 12.-14. október 2017 og lauk því í dag.

Aðeins efstu 30 kylfingar á stigalista Nordic Golf League fengu keppnisrétt í mótinu.

Axel lauk keppni á 1 yfir pari, 211 höggum (73 71 67) og að loknum hefðbundum 72 holum var hann jafn 2 öðrum kylfingum, Svíunum Niklas Lemke og Mikael Lindberg í 1. sæti.  Það varð því að koma til bráðbana milli þeirra þriggja og þar stóð Niklas Lemke uppi sem sigurvegari en Axel og Mikael Lindberg deildu með sér 2. sætinu í mótinu.

Haraldur Franklín  lauk keppni í 10. sæti, lék á samtals 6 yfir pari, 216 höggum (72 76 68).

Þeir báðir Axel og Haraldur Franklín stórbættu skor sín á lokadeginum eins og sjá má, Axel á 67 höggum og Haraldur Franklín 68 högg – Glæsiskor!!!

Sjá má lokastöðuna á SGT Tourfinal með því að SMELLA HÉR: