Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2017 | 12:00

Nordic Golf League: Axel lauk keppni á Kellers Park Masters í 2. sæti – Birgir Leifur T-8!!!

Þrír kylfingar hófu keppni á Kellers Park Masters mótinu á Nordic Golf mótaröðinni 10. maí 2017: Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK og Birgir Leifur Hafþórsson, GKG.

Mótið fór fram í Kellers Park golfklúbbnum í Børkop í Danmörku, dagana 10.-12. maí 2017 og lauk í dag

Axel lauk keppni í 2. sæti á samtals á 40 punktum (12 17 11). Stórglæsilegt!!!

Birgir Leifur varð T-8, með 34 punkta (14 11 9).

Þáttakendur í mótinu eru 72 og efstu 34 komust gegnum niðurskurð.

Til þess að sjá lokastöðuna á Kellers Park Masters mótinu SMELLIÐ HÉR: