Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2017 | 20:00

Nordic Golf League: Axel í 4. sæti – bestur íslensku kylfinganna á Kellers Park Masters e. 2. dag

Þrír kylfingar hófu keppni á Kellers Park Masters mótinu á Nordic Golf mótaröðinni 10. maí 2017: Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK og Birgir Leifur Hafþórsson, GKG.

Mótið fer fram í Kellers Park golfklúbbnum í Børkop í Danmörku, dagana 10.-12. maí 2017.

Eftir 2. keppnisdag er Axel búinn að standa sig best Íslendinganna; er samtals á 29 punktum (12 17).

Birgir Leifur er T-9, með 25 punkta (14 11) og Andri Þór komst því miður ekki í gegnum niðurskurð með 10 punkta (10 o) og hafnaði í 59. sæti.

Þáttakendur í mótinu eru 72 og efstu 34 komust gegnum niðurskurð.

Til þess að sjá stöðuna á Kellers Park Masters mótinu SMELLIÐ HÉR: