Nordic Golf League: Andri Þór og Guðmundur Ágúst náðu niðurskurði í Lumine!
Það voru 4 íslenskir kylfingar við keppni á móti á Lumine golfstaðnum á Spáni; en þetta voru/eru þeir Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR.
Mótið, sem ber heitið Lakes Open er hluti af SGT Winter Series 2018 á Nordic Golf League mótaröðinni.
Mótið stendur 24.-26. febrúar 2018. Lumine golfstaðurinn er nálægt borgunum Cambril og Tarragona, um 105 km frá Barcelona á Costa Dorada.
Leikið er á 2 völlum Lumine: Hills vellinum (sem er par-72) og Lakes vellinum (sem er par-71).
Eftir 2. hring í dag var skorið niður og náðu tveir íslensku keppendanna; GR-ingarnir Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson niðurskurði. Einungis 45 af 156 keppendum náðu niðurskurði og fá að spila lokahringinn.
Niðurskurður var miðaður við skor upp á samtals 1 yfir pari eða betra.
Guðmundur Ágúst lék á samtals 2 undir pari, 141 höggi (69 72) og er T-21. Guðmundur Ágúst lék Hills völlinn í dag.
Andri Þór lék á samtals sléttu pari, 143 höggum (72 71) og er T-34. Andri Þór lék Lakes völlinn í dag.
Axel (+3) og Haraldur Franklín (+4) eru úr leik.
Sjá má stöðuna á Lakes Open SGT Winter Series 2018 með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
