Andri Þór Björnsson, GR.
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 27. 2017 | 20:00

Nordic Golf League: Andri Þór bestur á Lumine – lauk keppni á 68 höggum og í 25. sæti!!!

Fjórir íslenskir kylfingar tóku þátt í Lumine Lakes Open sem fram fór á Spáni, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni og lauk í dag.

Íslensku þátttakendurnir voru: Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR.

Andri Þór lék best Íslendinganna eða á samtals 2 undir pari, 212 höggum (73 71 68).  Hann átti glæsilegan lokahring upp á 3 undir pari, 68 högg, þar sem hann fékk 4 fugla og 1 skolla, en lokahringurinn var spilaður á Lakes vellinum (sem er par-71). Andri Þór lauk keppni jafn í 25. sæti.

Haraldur Franklín Magnús lék á samtals 3 yfir pari, 217 höggum (72 68 77) – átti því miður slakan lokahring upp á 6 yfir pari, 77 högg; en skorkortið var afar skrautlegt – þar mátti m.a. sjá 4 fugla, 4 skolla og 3 skramba. Haraldur Franklín lauk leik T-45.

Guðmundur Ágúst og Axel náðu ekki niðurskurði, en aðeins 54 efstu náðu niðurskurði þ.e. allir sem jafnir voru í 45. sætinu.

Sjá má lokastöðuna á Lumine Lakes Open með því að SMELLA HÉR