Haraldur Franklín Magnús. Mynd: Golf 1 Nordic Golf League: Haraldur á besta skori ísl. keppendanna 2. dag í Danmörku
Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR, léku allir 2. hring á Willis Towers Watson Masters mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni og fer fram 7.-9. september 2017.
Mótsstaður er Kokkedal golfvöllurinn, í Hørsholm, 30 km norður af Kaupmannahöfn og verður lokahringurinn spilaður á morgun.
Axel er sem fyrri daginn á besta skori íslensku keppendanna, en hann er búinn að spila á samtals 3 undir pari, 141 höggi (70 71). Í dag var Axel á 1 undir pari, 71 höggi; fékk 4 fugla og 3 skolla og er T-7, þ.e. deilir 7. sætinu með 4 öðrum keppendum.
Haraldur Franklín stórbætti sig frá fyrri degi, í gær lék hann á 76 höggum en í dag tók hann 7 högga sveiflu í rétta átt; þ.e. kom í hús á 69 glæsihöggum; lék á 3 undir pari á hring þar sem hann fékk 5 fugla og 2 skolla. Samtals er Haraldur Franklín búinn að spila á 1 yfir pari, 145 höggum (76 69).
Andri Þór komst því miður ekki í gegnum niðurskurð. Niðurskurður var miðaður við samtals 3 yfir pari, en Andri Þór var á 6 yfir pari, 150 höggum (75 75).
Sjá má stöðuna á Willis Towers Watson Masters mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
