Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 13:25

Nordea: Birgir Leifur á 2 undir pari 69 höggum e. 1. dag í Landskrona

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf leik í dag á Landskrona Masters PGA Championship, en mótið er hluti af Nordea mótaröðinni.

Leikið er í Landskrona GK í Svíþjóð og stendur mótið dagana 23.-25. maí.

Birgir Leifur lék á 2 undir pari, 69 höggum; hann fékk 4 fugla og 2 skolla.

Birgir Leifur er 3 höggum á eftir forystumanninum, heimamanninum Jacob Glennemo. Birgir Leifur  deilir 17. sæti ásamt 12 öðrum.

Sjá má stöðuna á Landskrona Masters eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR: