Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2012 | 10:00

Nokkrir hápunktar ársins 2012 á Monterey golfvöllunum í Kaliforníu

Eftirfarandi eru nokkrir hápunktar golfársins 2012 á golfvöllum Monterey skagans:

Phil Mickelson sigraði í AT&T Pebble Beach National Pro-Am (áður Crosby Pro-Am) átti m.a. glæsilokahring upp á 64 högg og vann Charlie Wi með 2 höggum.   Tiger Woods spilaði í  AT&T móti sínu frá árinu átti hrikalegan lokahring upp á 75 högg eftir að hafa farið 3 yfir á Doom stretch á Pebble Beach golfvellinum  (þ.e. holum nr. 7-10). Mickelson þrípúttaði aldrei á 72 holum!

Matt Dobyns, golfkennari í Fresh Meadow Country Club í New York sigraði í 45. PGA Professional National Championship með 8 högga mun á næsta mann og sló þar með met Sam Snead um mesta mun sigurvegara mótsins.

Kirk Triplett átti lokahring upp á 66 högg og sigraði the Nature Valley First Tee Open á Pebble Beach… að þessu sinni án hvíta hattarins síns, sem hefir verið einkennismerki hans úti á velli um langt skeið.

Í Pro-Junior hluta mótsins átti Tyler Broach, félagi í the First Tee of Richmond/Chesterfield í Virginíu sitt draumamóment þegar hann sökkti 15 feta fuglapútti á 18. flöt sem varð til þess að hann og atvinnumanns félagi hans Mark McNulty unnu með 1 höggs mun.

Tveggja hanska Gainey“ sigrar 41. Callaway Pebble Beach Invitational.

Rickie Fowler og Bubba Watson nú meiru jólasveinarnir að tapa svona fyrir Davis LoveIII og Nick Watney í „Endurtekningunni (ens.: Re-Match) á „the Match“ frá árinu 2012!!!

56 árum eftir að „The Match“ fór fram á Cypress Point golfvellinum, þ.e. árið 2012 fór fram „Re-Match“ þ.e. „Leikurinn“ var endurtekinn. Það voru atvinnumennirnir Bubba Watson og Rickie Fowler annars vegar og Nick Watney (sem spilaði í stað Fred Couples) og Davis Love III hins vegarsem léku í endurtekningu „The Match“ frá árinu 1956 þegar atvinnumennirnir Ben Hogan og Byron Nelson kepptu gegn áhugamönnunum Harvie Ward og Ken Venturi. Leikar í „Endurtekningunni“ fóru 2&1 fyrir Love III og Watney.

Meiri fréttir frá Cypress Point: Kramer Hickok nemandi á 2. ári í University of Texas jafnar vallarmetið á golfvelli Cypress Point þ.e. 9 undir pari, 63 á æfingahring fyrir the Stanford Classic.
Til þess að lesa enn fleiri fréttir skoðið góða grein Jerry Stewart hjá Monterey County Herald sem ofangreint byggir á SMELLIÐ HÉR: