Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2012 | 08:00

NK: Unnið hörðum höndum að því að koma upp inniæfingaaðstöðu fyrir félagsmenn NK í Lækningaminjasafninu við Nesstofu

Á heimasíðu NK er eftirfarandi fréttatilkynning:

„Í síðustu viku fengum við (í NK) lykla að Lækningaminjasafninu og er nú unnið hörðum höndum að því að innrétta húsnæðið til vetraræfinga fyrir klúbbfélaga. Áætlað er að þeirri vinnu verði lokið í kringum 10. febrúar. Aðstaðan mun samanstanda af 100 fermetra púttflöt, áþekkri þeirri sem er í Laugardalshöll og við höfum notað síðustu 2 ár og 6 mottum þar sem hægt verður að slá í net.

Æfingar barna og unglinga hafa af þessum sökum tafist nokkuð en munu (hófust í gær 1. febrúar).

Æfingatímar verða sem hér segir:

Strákar opinn hópur – mánudagar og fimmtudagar kl. 15.30 – 16.30

Stelpur opinn hópur – mánudagar og fimmtudagar kl. 16.30 – 17.30

Meistaraflokkur – miðvikudagar kl. 19.00

Opnunartími fyrir félagsmenn verður auglýstur nánar á næstu dögum.“