
NK: Nökkvi og Þorsteinn sigruðu í BYKO vormótinu á Nesinu
Fyrsta alvöru mót sumarsins á Nesvellinum fór fram í (gær) þegar BYKO vormótið var haldið. Það má segja að hugtakið „skiptust á skin og skúrir“ hafi átt vel við því nánast allar tegundir veðurs gerðu vart við sig á meðan mótinu stóð. Það voru sextíu og átta kylfingar sem skráðu sig til leiks. Óvenju mikið var umforföll en á móti bættust líka við nýir keppendur þegar leið á daginn. Fyrirkomulag mótsins var punktakeppni með forgjöf og var það Þorsteinn Þorsteinsson sem lék sinn besta hring í móti hingað til sem náði bestum árangri en hann lék á 81 höggi og fékk 43 punkta. Nökkvi Gunnarsson átti besta skor dagsins en hann lék á 71 höggi. Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin í punktakeppni ásamt besta skori dagsins án forgjafar og voru helstu úrslit eftirfarandi:
Punktakeppni:
1. sæti – Þorsteinn Þorsteinsson, 43 punktar
2. sæti – Ellen Rut Gunnarsdóttir, 41 punktur
3. sæti – Hörður Felix Harðarson, 39 punktar
4. sæti – Örn Baldursson, 38 punktar
5. sæti – Steinn Baugur Gunnarsson, 37 punktar
Höggleikur:
1. sæti – Nökkvi Gunnarsson, 71 högg
Nándarverðlaun:
2./11. hola – Kristín Erna Gísladóttir, 1,34 metra frá holu
5./14. hola – Sverrir Þór Sverrisson, 1,47 metra frá holu
Önnur úrslit mótsins má sjá með því að smella hér.
Heimild: nkgolf.is
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023