NK: Nökkvi og Davíð Kristján sigruðu í 1. móti Ecco forkeppninnar
Það var fremur hráslaglegt veður sem tók á móti fyrstu keppendunum í ECCO mótinu laugardaginn 17. maí 2014. Það hlýnaði þó þegar líða tók á daginn og þrátt fyrir stöku skúri var ágætis golfveður á Nesvellinum. ECCO mótið er eins og venjulega bæði sjálfstætt mót og einnig forkeppni fyrir Bikarkeppni klúbbsins og Klúbbmeistarann í holukeppni. Í bikarkeppninni komast áfram 32 efstu í höggleik með forgjöf og fyrir klúbbmeistarann í holukeppni komast 16 efstu áfram í höggleik án forgjafar úr mótinu í dag.
Nökkvi Gunnarsson sigraði í höggleik án forgjafar á 67 höggum og með forgjöf sigraði Davíð Kristján Guðmundsson á 68 höggum nettó. Sú sjaldgæfa staða kom upp 7 kylfingar voru jafnir í 3. sæti og þurfti því ansi fjölmennan bráðabana til að knýja fram úrslit um það sæti sem Steinn Baugur Gunnarsson hlaut að lokum.
Helstu úrslit urðu annars eftirfarandi:
Höggleikur án forgjafar:
1. sæti – Nökkvi Gunnarsson, 67 högg
2. sæti – Ólafur Björn Loftsson, 71 högg
3. sæti – Steinn Baugur Gunnarsson, 75 högg
Höggleikur með forgjöf:
1. sæti – Davíð Kristján Guðmundsson, 68 högg nettó
2. sæti – Guðjón Ómar Davíðsson, 69 högg nettó
3. sæti – Nökkvi Gunnarsson, 70 högg nettó
Nándarverðlaun:
2./11. hola – Arnar Friðriksson, 1,69m frá holu
5./14. hola – Skúli Friðrik Malmquist, 3,07m frá holu
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
