Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2013 | 22:15

NK: Ágúst og Nökkvi sigruðu í Byko vormótinu

Fyrsta alvöru mót sumarsins á Nesvellinum var haldið í dag, laugardaginn 11. maí 2013.  Greinilegt er að félagar í Nesklúbbnum sem og eflaust annarsstaðar eru golfþyrstir þessa dagana því þrátt fyrir ansi fjölbreytt veðurfar á meðan á móti stóð tóku 81 kylfingur þátt í mótinu.  Nesvöllurinn lítur vel út þessa dagana og voru kylfingar almennt mjög ánægðir með ástand vallarins og þá sérstaklega flatirnar.

Aðalsteinn Jónsson, GR, púttar hér á 3. flöt Nesvallar og boltinn fór örugglega ofan í. Mynd: Golf 1

Aðalsteinn Jónsson, GR, púttar hér á 3. flöt Nesvallar og boltinn fór örugglega ofan í. Mynd: Golf 1

Annað hollið út í Byko Vormóti NK, 11. maí 2013. Mynd: Golf 1

Annað hollið út í Byko Vormóti NK, 11. maí 2013. Mynd: Golf 1

Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin í punktakeppni ásamt verðlaunum fyrir besta skor án forgjafar.  Í punktakeppninni var það Ágúst Þorsteinsson sem bar sigur úr býtum með 40 punkta en Ágúst var í síðasta ráshópi dagsins og skilaði síðastur allra inn skorkorti í mótinu.

Annars voru helstu úrslit eftirfarandi:

Nándarverðlaun:

2./11. braut – Ásgeir Bjarnason: 34cm frá holu
5./14. braut – Rúnar Geir Gunnarsson: 41,5cm frá holu

Punktakeppni:

1. sæti – Ágúst Þorsteinsson: 40 punktar
2. sæti – Oddný Rósa Halldórsdóttir: 39 punktar
3. sæti – Kristinn Arnar Ormsson: 38 punktar
4. sæti – Lárus Þ. Árnason: 37 punktar
5. sæti – Þorvaldur Haraldsson: 37 punktar

Höggleikur:

1. sæti – Nökkvi Gunnarsson: 73 högg.

Heimild: nkgolf.is

Mikið af fuglum á Nesvelli eins og alltaf á vorin. Mynd: Golf 1

Mikið af fuglum á Nesvelli eins og alltaf á vorin. Mynd: Golf 1