
NK: Helga Kristín með 46 punkta!!!
Opna þjóðhátíðardagsmótið fór venju samkvæmt fram á Nesvellinum 17. júní. Nokkuð stíf suðaustanátt setti svip sinn á mótið sem annars fór að mestu mjög vel fram. Færri komust að en vildu í mótið og voru 108 kylfingar úr tíu golfklúbbum skráðir til leiks. Helga Kristín Gunnlaugsdóttir úr Nesklúbbnum kom sá og sigraði í punktakeppninni og það með yfirburðum. Helga sem var með 9,5 í forgjöf fyrir mótið lék hringinn á 73 höggum sem skilaði henni 46 punktum. Litlu mátti muna að þeir yrðu 47 því Helga púttaði fyrir erni á síðustu holunni sem fór rétt framhjá og þurfti hún því að „sætta sig“ við fugl. Sannarlega glæsilegur hringur hjá Helgu Kristínu sem fyrir utan glæsileg verðlaun í mótinu fær dágóða forgjafarlækkun að auki. Í höggleiknum sigraði Rúnar Geir Gunnarsson á 70 höggum en annars voru helstu úrslit eftirfarandi:
Höggleikur:
1. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson, NK – 70 högg
2. sæti – Ólafur Björn Loftsson, NK – 71 högg
3. sæti – Brynjólfur Einar Sigmarsson, GKG – 71
Punktakeppni:
1. sæti – Helga Kristín Gunnlaugsdóttir, NK – 46 punktar
2. sæti – Auðunn Örn Gylfason, GEY – 40 punktar
3. sæti – Helga Matthildur Jónsdóttir, NK – 38 punktar
Nándarverðlaun:
2./11. braut: Kristín Erna Gísladóttir, NK – 76 cm. frá holu
5./14. braut: Methúsalem Hilmarsson, GKJ – 3,51 metra frá holu
8./17. braut: Ólafur Örn Ólafsson, GÁ – 21 cm. frá holu
Heimild: nkgolf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024