Ian Poulter.
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2012 | 22:00

Níu heitustu, svölustu, kynþokkafyllstu og best útlítandi strákarnir í golfinu

Hér áður hefir birtst á Golf1 listi með kynþokkafyllstu kvenkylfingum heims. En hver skyldi nú vera kyntröll ársins 2012 af karlkylfingum?

Eftir þessum lista hefir verið beðið eftir með spenningi. Afsakið Ryo Isikawa, Alvaro Quiros, Martin Kaymer, Sergio Garcia, Aaron Baddely, og aðrir, en hér er listi helstu hjartknúsara golfheimsins. Listinn er algerlega óvísindalegur, samsettur af konum, sem telja sig vita sitt hvað um golfheiminn og hefir áður birtst á robertfagan.com…. og er birtur hér lítillega breyttur aðallega til skemmtunar og yndisauka s.s. verður að vera á köldu laugardagskvöldi….

9. sæti Ian Poulter

Ian Poulter.

Ian Poulter er heitur, hann á sína eigin fatalínu og fer sjaldnast troðnar slóðir hvort heldur er í golfinu, sem öðru

8. sæti  Matteo Manassero

Matteo Manassero.

Matteo Manassero er svar Evróputúrsins við Lexi Thompson á LPGA. Þessi sykursæti ungi, hæfileikaríki kylfingur laðar að sér áhorfendur í tonnatali og lætur Rickie Fowler líta út eins og gamlan skrögg.

7. sæti Trevor Immelman

Trevor Immelman

Immelman hefir það fram yfir aðra kynþokkafulla kylfinga að hafa komið til Íslands, sem er einstaklega kynþokkafullt. Þrátt fyrir að kylfur hans hafi ekki komið með og hann þurfti að spila með lánssett var hann „good sport“ þannig að lengi í minnum er haft hér á landi. Hann fær höfuð yngismeyjanna til þess að snúast í hring á eftir honum úti á golfvelli, þótt hann sé varla hærri en tí.

6. sæti Camilo Villegas

Camilo Villegas frá Kólombíu.

Camilo er einfaldlega heitur. „Calientissimo!!!!“ upp á spænsku. Nektarmynd af honum í köngulóarstellingunni í ESPN Body Issue verður lengi í minnum haft, en þar afhjúpaði Kólombíumaðurinn, heiti vel þjálfaðan líkama sinn.

 

5. sæti Fred Couples

Fred Couples

Rólyndislegt háttarlag hans ásamt fagmennsku í golfinu gera Fred Couples einfaldlega ómótstæðilegan. Hann ber gráu hárin vel – þau gera hann bara svalari ef eitthvað.

 

4. sæti Rickie Fowler

Rickie Fowler.

Rickie Fowler er svona einskonar  „Justin Bieber golfliðsins”  Fowler og Bieber eiga a.m.k. eitt sameiginlegt – báðir syngja… Rickie í Golf Boyz. Hann er fallegur, en frammistaðan hans á golfvellinum gerir hann að einskonar „Natalie Gulbis PGA Tour“, m.ö.o. hefir aldrei sigrað í Bandaríkjunum.

 

3. sæti Kyle Stanley

Kyle Stanley.

Þetta er nýji strákurinn á listanum. En hann er ótrúlega svalur á sem utan vallar. Hann er alltaf með „cool“ sólgleraugu, alger töffari. Svo er hann skörinni framar en Rickie þar sem hann hefir þegar unnið fyrsta sigur sinn  á PGA Tour eftir að hafa tapað mjög naumlega vikuna þar áður, eins og lengi verður í minnum haft… Kyle er svalur náungi sem maður gleymir ekki svo auðveldlega.

 

2. sæti Adam Scott

Adam Scott

Ekkert sem kemur á óvart hér að sjá Adam Scott ofarlega á lista yfir kynþokkafyllstu karlkylfinga. Hann hefir sjarma sem fáar konur standast og er þar að auki góður í golfi. Svo er hann með töffasta kylfubera sögunnar, Stevie Williams.

 

En hver er þá nr. 1 fyrst Adam er það ekki?

 

Nr. 1 Gary Golf

Gary Golf.

Þetta er mesta sjarmatröllið af þeim öllum. Hann hefir verið valinn „áhugaverðasti maður golfsins“ og margar konur hafa sagt að þær myndu fara frá mönnum sínum fyrir Gary áður en þið getið sagt  „þrípútt.“ Þegar hann er ekki að sigra eitthvert golfmótið, breyta straumum heimshafanna, kenna heimsleiðtogum þá spilar Gary Golf golf með félögunum: Sophie Horn,  Anna Rawson, og Sophie Sandalo.