Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is NGL: Guðmundur Ágúst efstur e. 2. dag á Svea
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, er í efsta sæti fyrir lokahringinn á móti vikunnar á Nordic Golf League (NGL) mótaröðinni, Svea Leasing Open.
Guðmundur Ágúst er búinn að spila samtals á 11 undir pari, 133 höggum (66 67).
Guðmundur Ágúst er í 1. sæti á 3 högg á heimamanninn Charlie Jerner.
Mótið fer fram í Täby golfklúbbnum í Täby, Svíþjóð, dagana 10.-12. júlí 2019 og lýkur því á morgun.
Til þess að sjá stöðuna á Svea Leasing Open SMELLIÐ HÉR:
Sigri Guðmundur Ágúst á þessu móti hefir hann sjálfkrafa tryggt sér keppnisrétt á Challenge Tour þ.e. 2. deildinni í karlagolfinu í Evrópu út keppnistímabilið,- sem er stórglæsilegur árangur!!! Þeir sem sigrað hafa í 3 mótum NGL tryggja sér sjálfkrafa rétt á Challenge Tour og Guðmundur Ágúst hefir þegar sigrað í 2 mótum mótaraðarinnar.
Fjórir aðrir íslenskir kylfingar tóku/taka þátt í Svea Leasing mótinu Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR, sem ekki komust í gegnum niðurskurð og Aron Bergsson, sem náði niðurskurði eftir glæsilegan 2. hring upp á 67 högg, en Aron er T-39 í mótinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
