
NGL: Elvar Már stóð sig best Íslendinganna 11 sem þátt tóku á Bravo Tours Open!
Áhugamaðurinn Elvar Már Kristinsson, GR stóð sig best af þeim 11 íslensku kylfingum, sem spiluðu undir íslenskum fána og tóku þátt í móti á Nordic Golf League (NGL); þ.e. Bravo Tours Open by Enjoy Resorts.
Íslensku kylfingarnir, sem auk Elvar Más tóku þátt í mótinu voru: Andri Þór Björnsson,GR; Aron Júlíusson, GKG; Axel Bóasson, GK; Bjarki Pétursson, GB; Böðvar Bragi Pálsson, GR; Gísli Sveinbergsson, GK; Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG; Hákon Örn Magnússon, GR; Ragnar Garðarsson, GKG og Sigurður Arnar Garðarsson, GKG.
Auk framangreindra 11 kylfinga voru tveir Íslendingar í mótinu sem spiluðu fyrir erlenda klúbba: Aron Bergsson, lék fyrir sænska Hills golfklúbbinn og Hákon Harðarsson, sem spilaði undir dönskum merkjum fyrir Royal GC.
Mótið fór fram á Rømø vellinum á Jótlandi, í Danmörku, dagana 27.-29. apríl sl.
Elvar Már lék á samtals 5 yfir pari (75 73 73).
Alls komust 4 Íslendinganna gegnum niðurskurð; auk Elvars: Axel Bóasson (T-35) og Hákon Örn Magnússon (46. sæti) og Aron Bergsson, sem spilaði fyrir Hills golfklúbbinn í Svíþjóð, eins og áður sagði og varð T-21 á 4 yfir pari (72 75 73).
Sjá má lokastöðuna á Bravo Tours Open með því að SMELLA HÉR:
Í aðalmyndaglugga: Elvar Már Kristinsson. Mynd: seth@gsi.is
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022