Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2020 | 17:00

NGL: Bjarki og Rúnar luku keppni T-23

Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt í Lumine Lakes Open, sem var 2. mót 2020 keppnistímabils Nordic Golf League mótaraðarinnar: Bjarki Pétursson, GB, Ragnar Már Garðarsson, GKG og Rúnar Arnórsson, GK.

Skorið var niður eftir 2. hring og komust Bjarki og Rúnar áfram en Ragnar Már var úr leik.

Bjarki og Rúnar léku því lokahring mótsins í dag og urðu jafnir í 23. sæti.

Bjarki lék samtals á sléttu pari, 214 höggum (70 71 73).

Rúnar lék samtals á sléttu pari, 214 höggum (71 69 74).

Sjá má lokastöðuna á Lumine Lakes Open með því að SMELLA HÉR: