Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2019 | 22:00

NGL: Axel varð T-2 á Åhus KGK ProAm – Glæsilegur!!!

Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt í Åhus KGK ProAm 2019, sem er mót vikunnar á Nordic Golf League mótaröðinni.

Þetta voru þeir Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í höggleik, GR og Haraldur Franklín Magnús GR.

Axel náði þeim glæsilega árangri að landa 2. sætinu, sem hann deildi með Dananum Nicolai B. Kristensen. Axel lék á samtals 3 undir pari, 207 höggum (73 69 65) – Glæsilegt!!!

Haraldur Franklín varð T-39 á samtals 9 yfir pari, 219 höggum (74 70 75).

Guðmundur Ágúst komst ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.

Mótið fór fram dagana 15.-17. ágúst 2019 í Kristianstads golfklúbbnum í Åhus, Danmörku.

Sjá má lokastöðuna á Åhus KGK ProAm 2019 með því að SMELLA HÉR: