Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2019 | 22:00

NGL: Axel T-7 e. 2. dag Tinderbox

Andri Þór Björnsson, GR og Axel Bóasson, GK tóku/taka þátt í móti vikunnar á Nordic Golf League; Tinderbox Charity Challenge.

Leikið er með Stableford stigagjöf þannig að fjórir punktar fást fyrir örn, þrír fyrir fugl, tveir fyrir par, einn fyrir skolla og enginn punktur fyrir verra skor.

Axel lék 2. hringinn enn betur en fyrri daginn kom í hús á 69 höggum og fékk fyrir 39 punkta, er því samtals með 76 punkta eftir tveggja daga keppni  og T-7!!! Glæsilegt!!!

Andri Þór komst því miður ekki í gegnum niðurskurð; lék á 152 höggum (77 75) og hlaut samtals 64 punkta  (31 33), en niðurskurður var miðaður við samtals 68 punkta eða betur!

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Tinderbox Charity Challenge SMELLIÐ HÉR: