NGL: Aron Snær varð T-13 á UNICHEF meistaramótinu
Aron Snær Júlíusson, GKG, og Gísli Sveinbergsson, GK tóku þátt í UNICHEF Championship, móti á Ecco mótaröðinni, sem er hluti af Nordic Golf League (skammst.: NGL).
Gísli komst ekki í gegnum niðurskurð, en það gerði Aron Snær hins vegar.
Niðurskurður var miðaður við samtals 3 yfir pari eða betra.
Gísli lék því miður á 4 yfir pari (76 72) og munaði aðeins 1 höggi að hann kæmist í gegn.
Aron Snær lék fyrstu tvo hringina á 3 undir pari (70 71)og flaug gegnum niðurskurðinn. Hann bætti síðan við hring upp á 1 yfir pari og lauk því keppni á samtals 2 undir pari 214 höggum (70 71 73) og varð T-13 þ.e. deildi 13. sætinu með 4 öðrum kylfingum, sem voru þ.a.l. í 13.-17. sæti.
Í mótinu léku einnig Íslendingarnir Aron Bergsson og Hákon Harðarson. Aron spilaði undir sænskum fána og fyrir Hills golfklúbbinn í Svíþóð og Hákon undir dönskum fána og fyrir Royal golfklúbbinn. Hvorugur þeirra náði niðurskurði.
Mótið fór fram í Lübker Golf Resort í Nimtofte, Danmörku, dagana 22.-24. júní 2022. Nimtofte er 37 km austur af Randers.
Sjá má lokastöðuna á UNICHEF Championship með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
